Tíminn, May 13, 1978

From The Elvis Costello Wiki
Jump to navigationJump to search
... Bibliography ...
727677787980818283
848586878889909192
939495969798990001
020304050607080910
111213141516171819
202122232425 26 27 28


Tíminn

Iceland publications

European publications

-

This Year's Model

Elvis Costello & The Attractions

translate
   ESE

4½ stars (out of 5) reviews4½ stars (out of 5) reviews4½ stars (out of 5) reviews4½ stars (out of 5) reviews4½ stars (out of 5) reviews

This Year's Model - Elvis Costello and The Attractions, er ein mest auglýsta hljómplata, sem nokkur "new wave" listamaður hefur sent fra sér til þessa. Árangurinn er í fullu samræmi við auglýsinguna, því að This Year's Model hefur nú um nokkurt skeið verið á lista yfir söluhæstu plötur í Bretlandi og þó víðar væri leitað. En í sjálfu sér nægir auglýsingin ekki ein til þess að um metsöluplötu sé að ræða, hæfileikar verða að vera fyrir hendi og af þeim hefur Elvis Costello gnótt.

This Year's Model er önnur stóra plata Costello og er frami hans undraverður. Á plötunni er hvert lagið öðru betra og textar góðir. Hljóðfæraleikur er góður og söngur sömuleiðis. Pá er stjórn upptöku í höndum Nick Lowe og hann er þekktur fyrir allt annað en handvömm.

Tónlistin á This Year's Model spannar öll svið rokktónlistarinnar allt frá Buddy Holly til þess sem 10cc eru að gera. Costello leggur mikið upp úr textum og eru margir þeirra mjög góðir, eins og eftirfarandi línur bera vitni:

 "Later in the evening when arrangements are made
I'll be at the keyhole outside your bedroom door
You think that I don't know the boy that you're touching
But I'll be at the video and I will be watching

Margir texta Costellos fjalla um kynlifið í textum sem þessum og öðrum álíka ismeygilegum og þannig er This Year's Model — Ísmeygilega göð.


Tags: This Year's ModelThe AttractionsNick LoweLiving In ParadiseBuddy Holly

-

Tíminn, May 13, 1978


ESE reviews This Year's Model.

Images

Page 27 clipping.
Clipping.


Page scan.
Page 27.

-



Back to top

External links